9.11.2007 | 10:02
Sumir...
mættu í Powerade í gærkv. :)
Nokkuð kátur með hlaupið m.v. reynslu og fyrri afrek. Endaði á 44:25 (ca) - nú er bara málið að skafa aðeins framan af vömbinni og detta niður fyrir 40mín fyrir vorið.
Margir að gera flotta hluti í gær, Eva og Þórólfur o.fl., Trausti léttur á sér 5 dögum eftir NY, Kári og frú á léttu joggi. En Dúkkulízur þorðu auðvitað ekki, enda landsþekktar skræfur... ...eins og Dunkurinn Börkur sem er flúinn land (eða amk höfuðborgarsvæðið) til að þurfa ekki að mæta mér aftur í hlaupum.
Annars nóg að gera á öllum vígstöðvum...
Er á fullu að reyna að fegra mína hluti hérna hjá Símanum svo þetta líti aðeins betur út þegar ég yfirgef pleisið. Byrja með hreint borð á nýjum stað í des :)
Svo þarf að fara að taka einhvers konar ákvörðun um afrek á næsta ári.
Margar hugmyndir í gangi, ef allt gengur eftir þá fer ég sennilega 1-2 maraþon á mánuði frá apríl fram í nóvember + 1-2 ironman og nokkrar epískar hjólreiðakeppnir!
Allar tillögur eru vel þegnar - enn er nóg pláss í dagskránni ;)
Athugasemdir
Þarftu nokkuð að æfa með svona þétta keppnisskrá?
Hvaða banka ertu að fara til?
Kári (IP-tala skráð) 9.11.2007 kl. 13:23
Nei, það er rétt ég þarf lítið sem ekkert að æfa. Hljóp t.d. 2svar frá powerade í okt fram að powerade í nóv og bætti tímann samt um rúma mín. Greinilega stórlega ofmetið að æfa.
Banka? Hver er að banka?
Jens Viktor, 10.11.2007 kl. 09:27
Létt jogg???
Heiða og hr. voru á harðaspani...!
Heiða (IP-tala skráð) 10.11.2007 kl. 10:47
Asni!
Þú getur bara verið skræfa sjálfur!
Ásta (IP-tala skráð) 11.11.2007 kl. 19:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.